top of page

Velkomin á ráðstefnu nema í uppeldis- og menntunarfræði við Háskóla Íslands sem haldin verður 28. mars 2014 í fyrirlestrasalnum Skriðu í húsnæði Háskóla Íslands við Stakkahlíð.

 

Erindin á ráðstefnunni fjalla flest um lokaverkefni til BA-prófs en nokkur önnur verkefni verða kynnt. Ráðstefnan ber heitið „Sál hvers samfélags birtist skýrast í því hvernig það annast börn sín“ sem er tilvitnun í Nelson Mandela. Þemu ráðstefnunnar eru þrjú; nám og skóli, foreldrahlutverk og uppeldi, forvarnir og áhættuhegðun. Þau byggja á hluta þeirra viðfangsefna sem kynnt eru í grunnnámi í uppeldis- og menntunarfræði við Menntavísindasvið Háskóla Íslands.

 

Flutningur hvers erindis fyrir sig tekur um 8 mínútur en að hverju erindi loknu gefast gestum tækifæri til að leggja fram spurningar. Stutt hlé verða á milli þema og gestum boðnar veitingar um leið og þeim býðst að skoða veggspjöld flytjenda, sem verða til sýnis fyrir utan ráðstefnusalinn Skriðu.

 

 

Hlökkum til að sjá þig

 

"SÁL HVERS SAMFÉLAGS BIRTIST SKÝRAST Í ÞVÍ
HVERNIG ÞAÐ ANNAST BÖRN SÍN"

- Nelson Mandela

  • Twitter Clean
  • Facebook Clean

© 2014 Ráðstefna

bottom of page