top of page

Ég heiti Gréta Björk Guðráðsdóttir og er 26 ára gömul. Ég er búsett og uppalin í Kópavogi. Ég er í sambúð með eiginmanni mínum og saman eigum við tvö börn sem eru fædd 2007 og 2010. Ég útskrifaðist sem stúdent af félagsfræðibraut frá Menntaskólanum í Kópavogi vorið 2008. Haustið 2009 hóf ég nám í Uppeldis- og menntunarfræði en tók mér tveggja ára hlé frá námi þegar sonur minn fæddist árið 2010. Ástæðan fyrir því að ég valdi þetta nám er að mér þótti það áhugavert og bjóða upp á fjölbreytta atvinnumöguleika. Ég fann strax að námið höfðaði til mín og stefni ég á frekara nám í uppeldis og menntunarfræðum.

 

Erindi mitt á ráðstefnunni byggist á lokaverkefni mínu til BA-prófs í Uppeldis- og menntunarfræði við Háskóla Íslands. Verkefnið er rannsóknarritgerð og fjallar um áfengis- og vímuefnanotkun á unglingsárum. Vímuefnaneysla unglinga er bönnuð með lögum á Íslandi en viðgengst hún samt sem áður eins og víðast hvar annarstaðar í Vesturlöndum. Margar rannsóknir hafa verið gerðar til þess að ákvarða þá þætti sem leiða til vímuefnanotkunar unglinga en litið er á vandamálið sem orsök margra ólíkra áhættuþátta. Í erindi mínu verður farið yfir hlelstu áhættuþætti vímuefnaneyslu unglinga og hvernig sé hægt að nýta þekkingu þeirra við forvarnarstarf. Með áhættuþáttum í tengslum við vímuefnanotkun unglinga er átt við eitthvert það ástand eða aðstæður sem auka líkurnar á að einstaklingur byrji að neyta vímuefna. Þessir þættir eru einna helst erfðir, umhverfi og sálfræðilegir þættir eins og persónuleiki. Ef að áhættuþættirnir eru fleiri en einn eikur það líkur á vímuefnaneyslu og er það samspil þessara þátta sem ræður úrslitum. Eftir því sem við vitum meira um áhættuþætti vímuefnaneyslu unglinga er hægt að bregðast við þeim með forvörnum til að draga úr skaðlegum áhrifum.

Gréta Björk Guðráðsdóttir

Leiðbeinandi: Jakob Frímann Þorsteinsson

Hvaða börn eru í áhættu á að leyðast út í neyslu vímuefna á unglingsárum?

 

  • Twitter Clean
  • Facebook Clean

© 2014 Ráðstefna

bottom of page