


Ég heiti Anna Birna Fossberg og verð 25 ára í apríl. Ég er fædd á Akureyri en flutti til Reykjavíkur þegar ég var sjö ára gömul. Ég útskrifaðist sem stúdent frá Fjölbrautaskólanum í Breiðholti í desember 2010. Ég byrjaði í félagsráðgjöf þegar ég byrjaði í HÍ en sá fljótt að félagsráðgjöfin átti ekki við mig og skipti því yfir í Uppeldis- og menntunarfræði haustið 2012. Það sem heillaði mig mest við uppeldis- og menntunarfræðina var hversu fjölbreytt námið er og það býður upp á marga möguleika. Ég hef gaman af útiveru og að ferðast og reyni ég að nýta öll þau tækifæri sem gefst til að sameina þessi tvö áhugamál.
Mikilvægt er að starfsmenn grunnskóla og annarra stofnana sem vinna með börnum fái fræðslu frá yfirmönnum um leið og starfsmaður hefur starf hjá viðkomandi stofnun um kynferðislegt ofbeldi gegn börnum. Auk þess ættu yfirmenn að fara reglulega yfir þær verklagsreglur sem skólinn hefur sett sér, hvað varðar ferlið þegar tilkynnt er um atvik til barnaverndar. Markmið mitt með verkefninu er að búa til bækling sem veitir starfsmönnum auðveldari aðgang að upplýsingum um kynferðislegt ofbeldi og viðbrögð við því. Verkefnið ætti að gagnast öllum þeim sem starfa í grunnskólum, hvort sem það eru kennarar, skólastjórnendur eða aðrir starfsmenn. Bæklingurinn gefur upplýsingar um einkenni og afleiðingar kynferðislegs ofbeldis. Að auki er fjallað um hvernig starfsmenn ættu að bregðast við þegar barn segir frá misnotkun og hvað skal gera þegar grunur leikur á að barn sé beitt kynferðislegu ofbeldi. Með bæklingnum ættu þeir einng að öðlast þekkingu á hvernig skal standa að því að tilkynna til barnaverndanefndar hvort sem um grun eða frásögn barns sé að ræða.

Anna Birna Fossberg Óskarsdóttir
Leiðbeinandi: Sigurlína Davíðsdóttir