top of page

Ég er fædd þann 25. ágúst árið 1990 á Sauðárkróki og ólst ég þar upp. Ég útskrifaðist úr Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra árið 2010 af félagsfræði/íþróttabraut, seinustu önnina mína í FNV flutti ég til Danmerkur í hálft ár til að fara í lýðháskóla sem heitir IHÅ þar sem mér langaði að prufa eitthvað nýtt. Haustið 2011 ákvað ég svo að flytja til Reykjavíkur til að stunda nám við HÍ. Uppeldis- og menntunarfræðin heillaði mig strax út af því hve marga möguleika námið býður uppá.

 

Erindi mitt byggir á lokaverkefni mínu til BA-prófs í uppeldis- og menntunarfræði við Háskóla Íslands. Verkefnið er rannsóknarritgerð og fjallar um brottfall ungmenna úr framhaldsskóla. Brottfall úr námi hefur mikið verið í umræðunni síðustu árin og hafa margir fræðimenn og rannsakendur spáð í brottfalli og rannsakað það til að reyna að finna ástæður þess. Brottfall hefur alltaf verið stórt vandamál í skólamálum og verður það eflaust í einhvern tíma. Sá hópur nemenda sem fellur úr námi er skilgreindur sem brottfallshópur og eru það þeir einstaklingar sem ekki fara í frekara nám að loknum grunnskóla eða hafa hætt í framhaldsskóla. Ástæður brottfalls geta verið breytilega eftir aldri, skólastigi, þjóðerni og kyni, þó þessar ástæður séu margvíslegar þá eru margir þættir sem spila inní og hafa vissar afleiðingar með í för sér eins og t.d. fyrrum námsárangur og utanaðkomandi þættir eins og foreldar. Þeir nemendur sem falla úr námi eru líklegri til að leiðast út í áhættuhegðun sem tengist félagslegum og efnahagslegum þáttum. Mikið hefur verið um brottfall úr framhaldsskólum á Íslandi og ætla má að um helmingur árgangs sem innritast í framhaldsskóla teljist til brottfalls. Ýmist stuðningskerfi hafa verið þróuð til að draga úr brottfalli en er það allt en á byrjunarreit.

Brottfall úr framhaldsskóla eftir stutta dvöld þar:

Hverjar eru ástæður þess?

Svava Rún Ingimarsdóttir

Leiðbeinandi: Jón Torfi Jónasson

  • Twitter Clean
  • Facebook Clean

© 2014 Ráðstefna

bottom of page