


Frá því ég var smá pjakkur hef ég verið virkur í einhvers konar æskulýðsstarfi. Og ég leyfi mér jafnvel að ganga svo langt að segja að stór hluti af menntun minni hafi farið fram innan þess. Á undanförnum árum hef ég helst verið virkur innan skátahreyfingarinnar, Alþjóðatorgs og Klifurfélags Reykjavíkur sem þjálfari fyrir 13 til 18 ára klifrara. Haustið 2010 hóf ég nám í uppeldis- og menntunarfræði við HÍ en auk þess þá stunda ég heimspekinám við sama skóla. Áhugasvið mitt innan fræðanna er heldur breytt en til þess að nefna það helsta þá er borgaravitund, fjölmenning, félagslegt réttlæti, skólasaga 20. aldar, stjórnmálaheimspeki og siðfræði það sem heillar mig alveg sérstaklega.
Áhugi minn á ungmennalýðræði sem fræðilegu viðfangsefni kviknaði eftir þátttöku mína í rannsóknarverkefninu Raddir ungra skáta – vald, vægi, virðing. Um er að ræða viðtalsrannsókn en Sunna Dís Kristjánsdóttir tók viðtöl við 15 ungmenni sem voru virk í skátahreyfingunni sumarið 2012. Stefnt er að því að birta niðurstöður rannsóknarinnar í apríl á þessu ári. Meðgangan hefur því verið löng en greinin „Ungmennalýðræði í æskulýðsfélögum“ sem verður kynnt á ráðstefnunni hefur verið í mótun í næstum því tvö ár.
Markmið greinarinnar er að draga upp skýra mynd af því hvernig ungmennalýðræði getur verið starfrækt innan æskulýðsfélaga. Tveir meginþættir ungmennalýðræðis er að gera ungmennum kleift að hafa áhrif á þeirra eigið æskulýðsstarf og að vera lærdómsvettvangur þar sem þau kynnast lýðræðislegum vinnubrögðum og stjórnarformi auk þess að lögð er rækt við borgaravitund þeirra. Í mörgum æskulýðsfélögum er nú þegar einhvers konar ungmennalýðræði. Dæmi um það eru ungmennaráð sem hafa sprottið upp innan æskulýðsfélaga en einnig sveitarfélaga. Sum staðar virðist sem hlutverk ungmennalýðræðisins sé heldur óljóst en það var meðal þess sem kom fram í rannsókninni sem nefnd var hér að ofan. Þetta orsakast að hluta til vegna þess að það er viss skörun á milli þess formlega lýðræðis í félaginu ― þ.e. að stjórn er kosin á lýðræðislegan máta á aðalfundi ― og ungmennalýðræðisins. Það er þessi flækja sem greininni er ætlað að leysa. Þar sem ég er í skiptinámi þá er ég ekki með mikið af höttum með mér… Þannig ég læt fylgja mynd sem var tekin síðasta sumar.

Elmar Orri Gunnarsson