top of page

Ég er 29 ára kona, móðir, kærasta, dóttir, systir og vinkona. Fæddist í Los Angeles og bjó þar til tveggja ára aldurs en uppalin í Reykjavík. Ég vann á leikskóla frá 19 ára aldri og útskrifaðist svo með stúdent úr Menntaskólanum Hraðbraut 2009. Haustið 2009 fluttist ég til Kaupmannahafnar þar sem ég nam við Köbenhavns pædagogseminarium. Ég flutti aftur til Íslands þegar ég átti von á dóttur minni sem fæddist í ágúst 2011. Sama haust byrjaði ég í Uppeldis- og menntunarfræði við háskólann en ég hef alltaf haft ómældan áhuga á uppeldi og öðru sem við kemur börnum. Áhugamál mín eru fjölskyldan, vinirnir, uppeldi, ljósmyndun, ferðalög, handavinna, hönnun, yoga, hollusta, eldamennska, list, ást, hamingja og hlátur.

 

Erindið er byggt á BA verkefni okkar Önnu Karenar Ágústsdóttur sem er eigindleg rannsókn. Við tókum viðtal við fimm mæður sem að aðhyllast tengslauppeldi eða Attachment parenting. Í því felst að fylgja innsæi sínu og hjartanu við uppeldi barna sinna. Mikil áhersla er lögð á að foreldrar afli sér þekkingar um þroska barna og uppeldishætti. Nánd, virðing, öryggi og traust eru ríkjandi í samskiptum foreldra við börn sín. Hér eru þrjár tilvitnanir úr viðtölum okkar sem mér þykir endurspegla tengslauppeldi og kosti þess:

„að bera virðingu fyrir því að barnið sé manneskja sem að hefur raunverulegar tilfinningar og leggja sig fram við það að kynnast barninu“ „ég fíla að hún geti sagt: ég er reið, ég er leið. Að geta sett svona eitthvað á tilfinninguna, það finnst mér mjög gott“ „sjálfsöryggi skapast náttúrulega af þekkingu“

Rannsókn eftir Washington, Amy og Dunham, Mardis. (2011). Early Parenting Practices and Outcomes for Adolescents. Styður málefni okkar en niðurstöður hennar benda til þess að það að hljóta tengslauppeldi hafi jákvæð áhrif á einstaklinga. Þeir eru líklegri til að búa að félagslegri færni, samskiptahæfni, hæfni til að aðlagast og að hafa forystuhæfileika. Þeir voru einnig líklegri til að vera sjálfsöruggari og í meira andlegu jafnvægi.

Upplifun íslenskra mæðra á tengslauppeldi

Elsa Valborg Sveinsdóttir

Leiðbeinandi: Ásdís Olsen

  • Twitter Clean
  • Facebook Clean

© 2014 Ráðstefna

bottom of page