top of page

Ég er fædd árið 1985 og ólst í Kópavogi. Ég bý í Kópavoginum með kærastanum mínum og 3 ára syni okkar. Eftir að ég lauk grunnskólapróf úr Snælandsskóla lá leiðin í Menntaskólann í Kópavogi, síðan tók ég pásu frá bóknámi og fór í Snyrtiskólann í Kópavogi. Útskrifaðist þaðan sem snyrtifræðingur í mars 2007 og vann sem snyrtifræðingur til ársins 2009. Ég fór þá í Fjölbrautaskólann í Breiðholti og útskrifaðist sem stúdent í maí 2009. Haustið 2011 byrjaði ég í uppeldis- og menntunarfræði, og finnst mér námið mjög áhugavert og bjóða upp á marga möguleika. Ég hef alltaf haft áhuga á börnum og velferð þeirra og mun það nýtast mér vel í bæði starfi og uppeldi.

 

Í ritgerðinni minni rannsaka ég upplifun ungmenna af því að eiga stjúpforeldri, og leitast við að draga fram það sem ungmenni upplifa sem jákvæða og/eða neikvæða þætti tengda því að eiga stjúpforeldri. Markmið rannsóknar að fá sýn, reynslu og upplifun ungmenna á því að eiga stjúpforeldri og byggir rannsóknin á viðtölum við þrjú ungmenni á aldrinum 20-25 ára. Tíðni hjónaskilnaða hefur aukist mjög og er nú 3233 frá árunum 2007-2011. Fjöldi barna elst nú upp í samsettum fjölskyldum og því skiptir miklu máli að varpa ljósi á reynslu barna af því, ekki síst til að hjálpa foreldrum og stjúpforeldra að takast á við breyttan veruleika. Réttur stjúpforeldra er mjög óljós og stjúptengslin geta verið flókin og marslungin. Niðurstöður rannsóknarinnar benda til þess að reynsla ungmenna hafi verið misjöfn. Sum börn mynda betri tengsl við stjúpforeldri sitt og tengjast þeim meira heldur en blóðforeldri sem býr ekki á heimilinu og að stjúpforeldri sýni þeim umhyggju og virðingu sem þau fengu ekki hjá blóðforeldri.

Upplifun ungmenna af því að eiga stjúpforeldri

Helga Irma Sigurbjörnsdóttir

Leiðbeinandi: Kolbrún Þorbjörg Pálsdóttir

  • Twitter Clean
  • Facebook Clean

© 2014 Ráðstefna

bottom of page