



Steinunn Bára Ægisdóttir
Ég fæddist þann 26.ágúst 1983. Ég ólst upp í Ólafsvík og flutti til Reykjavíkur 16 ára gömul og bý þar enn en þó með viðkomu í Frakklandi og Danmörku. Ég bý með unnusta mínum og dætrum okkar þeim Ragnheiði Mist og Brimrúnu Báru. Ég hef gaman af að ferðast og að læra tungumál. Ég lauk námi frá keili í febrúar 2011 og hóf nám í uppeldiis- og menntunarfræði haustið 2011 og mun útskrifast í febrúar 2015. Ég valdi þetta nám því uppeldisfræðin finnst mér áhugaverð og svo býður þetta nám upp á svo marga möguleika fyrir frekara nám.
Erindi mitt byggir á ritgerð sem ég gerði í áfanganum „Hugur, Heilsa og forvarnir“ þar sem ég fjallaði um offitu barna og forvarnastarf grunnskóla gegn offitu. Offita er með alvarlegustu heilsufarsvandamálum 21.aldar. Ástæður offitu geta verið margþættar. Þær algengustu eru erfðaþættir, aukin kyrrseta og óholl fæða þar sem næring er af skornum skammti og hitaeiningar í hámarki.Til að ná árangri í betri heilsu og minnka offitu hjá börnum er nauðsynlegt að efla forvarnastarf. Forvarnastarf er hægt að vinna á marga vegu en til þess að árangur náist er mikilvægt að allir standi saman og vinni að bættri heilsu í sameiningu. Grunnskólar landsins hafa unnið markvisst að forvarnastarfi barna hvað heilsueflingu varðar. Verkefnið Heilsueflandi grunnskóli er byggt á hugmynd frá Ottawasáttmála Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar um heilsueflingu og skiptist í eftirfarandi sex grunnþætti: 1. Stefnuviðmið um heilsueflandi grunnskóla, 2. Skólaumhverfið, 3. Félagsumhverfi skólanna, 4. Heilsuvitund nemenda og getu þeirra til breytinga, 5. Samfélagstengsl, 6. Heilbrigðisþjónusta – skólaheilsugæsla. Megin tilgangur með heilsueflandi grunnskólum er til að mynda að bæta námsárangur, heilbrigðir eiga auðveldara með lærdóm en þeir sem eru sjúkir. Að efla þekkingu nemenda um heilbrigði og þjálfa rökhugsun hjá þeim, félagsmál og framkomu
Offita barna og heilsueflandi skólar.
Hvernig geta skólar og yfirvöld haft áhrif?