top of page

Ég er Kópavogsmær fædd árið 1985 sem hóf nám í uppeldis- og menntunarfræði vorið 2012 og hefur sá tími verið skemmtilegur og fróðlegur. Námsval tengt uppeldismálum og menntun var tilkomið af áhuga og þeirri reynslu að vera tveggja barna móðir.

 

Samkvæmt könnun UNICEF árið 2013 kemur í ljós að unglingsþunganir jafnt sem brottfall framhaldsskólanema er hæst hérlendis á Norðurlöndunum. Þessar niðurstöður gætu bent til þess að þetta málefni hafi orðið hornreka í íslensku samfélagi og ber því að skoða nánar. Athugað var hvað stendur til boða í íslensku samfélagi fyrir þessar stúlkur og hvað hefur reynst vel erlendis. Stuðst var við áður birt fræði og rannsóknir á þessu sviði til þess að svara fyrrnefndri vangaveltu. Málefninu hefur verið gefin gaumur erlendis og sérstaklega í Bandaríkjunum, þar sem tæplega milljón unglingsstúlkur verða þungaðar árlega. Víða erlendis sérsníða skólar námskeið fyrir þessar stúlkur, sem hefur haft jákvæð áhrif á námsferil þeirra og bætt samskipti við fjölskyldu. Íslenskt samfélag virðist ekki bjóða upp á nægilegt aðhald né stuðning fyrir þungaðar unglingsstúlkur til þess að gera þeim námsástundun auðveldari. Einungis er boðið upp á stöku stuðningshópa sem eru illa auglýstir. Næstu skref ættu að vera að skoða aðstæður og upplifun íslenskra þungaðra unglingsstúkna og hvað þeim finnst vanta eða hvernig væri hægt að koma til móts við þarfir þeirra.

 

Hvað getur stuðlað að áframhaldandi námi unglings-stúlkna að lokinni þungun?

Ragnheiður Dóra Brynjólfsdóttir

Brautskráning: Febrúar 2015

  • Twitter Clean
  • Facebook Clean

© 2014 Ráðstefna

bottom of page