


Ég er fædd á sumardaginn fyrsta þann 24. apríl árið 1980. Ég er fædd og uppalin í Borgarnesi og bjó þar til 19 ára aldurs. Eftir grunnskólagöngu mína hóf ég nám í Fjölbrautarskóla Vesturlands á Akranesi en fljótlega fann ég að námið hentaði mér ekki svo að úr varð að ég hóf nám í hársnyrtingu í Iðnskólanum í Hafnarfirði árið 1999. Þaðan útskrifaðist ég svo sem hársnyrtisveinn árið 2002 og hef unnið síðan þá að mestu leyti við að fegra hár landans. Í dag bý ég í Hafnarfirði ásamt unnusta mínum og börnunum okkar tveimur, 12 ára dóttur og 5 ára son. Ég hef lengi haft áhuga á málefnum barna og því fannst mér þetta nám í uppeldis- og menntunarfræði henta mér vel. Ég stefni á frekara nám tengt málefnum barna.
Erindi ráðstefnunnar er unnið út frá lokaverkefni mínu til BA-prófs í uppeldis- og menntunarfræði við Háskóla Íslands. Um er að ræða rannsóknarskýrslu sem fjallar um áhrif fræðsluheimsókna Brúðuleikhússins gegn kynferðislegu ofbeldi gagnvart börnum. Frá því í byrjun árs 2012 gerði Vitundarvakning stjórnvalda, um kynferðislegt, andlegt og líkamlegt ofbeldi gegn börnum, samning við brúðuleikarana Helgu Arnalds og Hallveigu Thorlacius um að sýna næstu þrjú árin, Krakkarnir í hverfinu fyrir öll börn í öðrum bekk í grunnskólum landsins. Vitundarvakningin er samstarfsverkefni innanríkisríkisráðuneytis, mennta- og menningarmálaráðuneytis og velferðarráðuneytis. Fræðslusýningunni er ætlað að auðvelda börnum að segja frá kynferðislegu ofbeldi sem þau verða fyrir. Boðskapur sýningarinnar er: Þú færð hjálp ef þú segir frá.
Ísland er aðili að samningi Evrópuráðsins um varnir gegn kynferðislegri misnotkun og kynferðislegri misneytingu gegn börnum en með þessum samningi er hvatt til vitundarvakningar um slíkt ofbeldi og að fræðslu sé beint til barna og einnig til þeirra sem eiga í beinum samskiptum við börn. Markmið rannsóknarinnar var að varpa ljósi á ávinning sýningarinnar og hvaða áhrif sýningin hefur haft á skólasamfélagið og einstaka nemendur að mati leikstjóra Brúðuleikhússins.

Brúðuleikhús sem námstæki og frásagnaraðferð.
Átaksverkefni gegn líkamlegu og kynferðislegu ofbeldi gagnvart börnum
Guðrún Edda Bjarnadóttir
Leiðbeinandi: Berglind Rós Magnúsdóttir