top of page

Ég er 35 ára gömul Reykjavíkurmær. Ég bý í Bústaðahverfinu ásamt þrem börnum, bónda, tveim hundum og ketti. Helstu áhugamál mín eru myndlist, skriftir, ýmisskonar sköpun og ferðalög. Síðastliðin 10 ár hef ég lesið lögfræði til aukagráðu ásamt rússnesku, auk uppeldis- og menntunarfræði. Yngri synir mínir eru 9 og 10 ára og ég hef stundað nám mitt með það í huga að geta verið mikið heima fyrstu árin. Ég er atvinnunámsmaður og hef afar gaman af námi. Nú líður að uppskerutíma í þeim efnum. Ég hef ekki alveg ákveðið hvað ég vil verða þegar ég verð stór en lögfræðin, mannréttindin og uppeldisfræðin eru mjög skemmtileg fög, hugsanlega finn ég leið til að sameina þetta í starfi á einhverjum tímapunkti.

 

Á síðasta ári var ég eina önn í háskóla í Kaliforníu. Þar lagði ég stund á mannréttinda- og félagsfræðitengt nám. Hugmyndin af verkefninu varð til úti. Ég ákvað að skrifa um barnahermennsku í tengslum við vistræðikenningu Bronfenbrenner (1986). Í öðrum orðum er litið á umhvefi barna og hlutverk þess í því ferli sem leitt getur til þess að börn verði hermenn. Kyn barna, menning, heilsa og félagsfræðilegar breytingar í tíma og rúmi eru áhrifaþættir sem einkenna barn. Vistfræðilíkanið skiptist í fjögur megin kerfi: Nánasta umhverfi sem felur í sér umönnunaraðila, tómstundir, dagvistun og fleira því skylt. Næstu kerfi mynda hringi hvert um annað með það fyrsta í miðjunni og gefa til kynna áhrifavalda eftir því hversu nálægt þeir standa barninu, trúarbrögð, félagsþjónusta, menning og hefðir eru dæmi um slíkt.

Börn í Bardaga / Combat Children and Toy Soldiers

Þórhildur Sif Þórmundsdóttir

Leiðbeinandi: Brynja Elísabeth Halldórsdóttir

  • Twitter Clean
  • Facebook Clean

© 2014 Ráðstefna

bottom of page