top of page

Ég er 38 ára móðir sem er fædd og uppalin í Vestmannaeyjum árið 1976. Ég á einn son sem fæddur er árið 2003 og við búum saman í Kópavogi. Ég er næst elst í fjögurra barna systkinahópi. Ég gekk í Barnaskóla Vestmannaeyja og lauk honum árið 1992. Þaðan lá leið mín í Framhaldsskóla Vestmannaeyja og lauk ég þar 3 önnum í almennu námi, flutti ég þá til höfuðborgarinnar og gekk í Iðnskólann í Reykjavík í 2 annir en hvarf þar frá námi eftir margra vikna kennaraverkfall. Lauk ég svo loks stúdentsprófi frá Keili árið 2008 og hóf svo fjarnám við Háskóla Akureyrar í hjúkrunarfræði, lauk einu ári þar en líkaði illa við námið og fann ég átti ekki heima þar. Eftir að hafa skoðað mig um ákvað ég að sækja um í uppeldis- og menntunarfræði við Háskóla Íslands um áramótin 2011-12 og hóf nám við sama skóla í Janúar það árið. Mjög skemmtilegt og lifandi nám þar sem ástríða mín fær að njóta sín og ákvað ég að helga lokaverkefnið mitt umfjöllun um móðurhlutverkið sem ég tel mikilvægasta hlutverk sem ég mun nokkurn tíma sinna.

 

Lokaverkefni mitt samanstendur af eigindlegri rannsókn sem ég vann. Þar tók ég opin viðtöl við einstæðar mæður og studdist við fyrirfram ákveðin viðtalsramma. Einnig fór ég í þátttökuathuganir þar sem ég fékk að fylgjast með mæðrum og börnum í leik og starfi. Áhugi minn fyrir móðurhlutverkinu kviknaði um leið og ég varð móðir sjálf árið 2003. Með verkefni mínu vonast ég til að ná til eyrna fleirri mæðra í von um að opna augu þeirra fyrir mikilvægi móðurhlutverksins. Mæður sinna svo gífurlega mikilvægu hlutverki og fann ég sjálf hve mikið vantaði í lífið þegar móðir mín féll frá er ég var tvítug stúlka. Ég notast við eigindlegu viðtölin mín sem og fleiri erlendar rannsóknir, fræðirit og fræðigreinar, þetta efni flétta ég svo saman til að sýna fram á mikilvægi móðurhlutverksins sem og vildi ég fjalla sérstaklega um einstæðar mæður þar sem þær eru oft í síðri aðstöðu til að sinna hlutverki sínu að fullu eins og þær myndu frekast kjósa. Ég varpa ljósi á hver upplifun þeirra er á móðurhlutverkið í amstri dagsins. Sem og er það mín heitasta ósk að móðurhlutverkið öðlis meiri viðringu og fái þann sess sem það á skilið því eins og sjálfur Freud sagði þá er móðurhlutverkið mikilvægasta hlutverk samfélagsins.

Hver er upplifun einstæðra mæðra á móðurhlutverkinu í dagsins önn?

Guðrún Ágústa Ágústsdóttir

Leiðbeinandi: Gunnlaugur Sigurðsson

  • Twitter Clean
  • Facebook Clean

© 2014 Ráðstefna

bottom of page