


Ég fæddist á Akureyri árið 1984 en ólst upp á Ólafsfirði. Þar bjó ég til 16 ára aldurs en flutti ég þá að heiman til að fara í Framhaldsskólann á Laugum. Eftir útskrift ferðaðist ég um í Mið Ameríku, þar sem ég stundaði sjálfboðaliðastörf og lærði spænsku. Árið 2008-2009 kláraði ég 1 ár í sálfræði en mér fannst námið ekki eiga nógu vel við mig, svo ég færði mig yfir í uppeldis- og menntunarfræði árið 2011. Það nám varð fyrir valinu vegna þess að mér þótti það áhugavert og ég hef áhuga á að starfa með börnum að námi loknu.
Tengslarit geta verið mjög gagnleg fyrir kennara sem vilja skoða félagstengsl og samskiptamynstur nemenda sinna, til dæmis til þess að bera kennsl á þá nemendur sem eiga við félagsleg vandamál að stríða. Mikilvægt er að kennarar grípi inní og leiti úrlausna þegar komið er auga á slíka nemendur.Kynning mín byggir á rannsókn á félagslegum tengslum og samskiptamyndstri unglinga í 10. bekk í grunnskóla einum á suðurlandi. Mun ég ekki gefa upp hvaða grunnskóla um ræðir til að gæta nafnleysis þátttakenda. Meðhöfundar mínir voru þær Ásta María Guðbrandsdóttir og Dóra Sveinsdóttir. Markmið rannsóknar okkar var að búa til tengslarit (e.sociogram) til að fá skýra mynd af félagslegum samskiptum innan bekkjarins. Við lögðum spurningalista fyrir nemendur í þessum tiltekna bekk í febrúar 2014, síðan bjuggum við til tengslarit úr einni spurningunni. Samkvæmt niðurstöðum okkar er ljóst að það eru ýmis félagsleg vandamál til staðar innan bekkjarins sem mikilvægt er að leysa. Að minnsta kosti 4 nemendur af 27 virðast standa heldur höllum fæti á félagslega sviðinu og eru 2 nemendur sem valda sérstökum áhyggjum því félagsleg staða þeirra virðist vera alveg gífurlega slæm.

Edda Rún Aradóttir
Leiðbeinandi: Brynja Elísabeth Halldórsdóttir