top of page

Ég heiti Erna Björk Ásbjörnsdóttir og er fædd þann 6. júlí 1976. Ég er alin upp í Reykjavík og gekk í grunnskóla þar og fór síðan í Fjölbrautaskólann í Breiðholti. Ég hóf nám við Uppeldis- og menntunarfræði í Háskóla Íslands haustið 2011 og hafði þá ekki verið í námi í nokkur ár. Fyrir þann tíma vann ég á leikskóla sem kveikti áhuga minn á uppeldis og menntamálum. Í dag bý ég í Garðabæ ásamt unnusta mínum og þremur börnum okkar og vinn á Bæjarskrifstofu Garðabæjar ásamt því að skrifa BA ritgerð undir leiðsögn Eyrúnar Maríu Rúnarsdóttur.

 

Erindið á ráðstefnunni er unnið út frá lokaverkefni mínu í Uppeldis- og menntunarfræði til BA-gráðu. Fjallað verður um líðan foreldra barna á unglingsárunum. Hvaða áhrif sá tími hefur á líðan foreldra. Ástæðan fyrir vali á viðfangsefni er grein eftir Steinberg og Silk sem fjallar um breytingar sem barn gengur í gegnum á unglingsárunum en þar kom einnig fram að foreldrar væru að ganga í gegnum breytingar á sama tíma. Algengt væri að foreldrar væru á miðjum aldri þegar börn þeirra færðust yfir á unglingsárin. Þetta þótti mér áhugavert og velti fyrir mér hvort þær breytingar sem foreldrar eru að ganga í gegnum hafi ekki áhrif á getu þeirra til að beita þeim uppeldisaðferðum sem rannsóknir hafa sýnt að séu svo mikilvægar fyrir börn og unglinga, ákvað ég því að nýta BA-ritgerðina mín til að skoða það nánar. Helstu niðurstöður eru m.a að vera sátt við sjálfan sig og hamingja í hjónabandi segir frekar til um líðan foreldra en ef þessir þættir voru ekki í lagi eru meiri líkur á að ágreiningar við unglinginn hafir áhrif á líðan.

Hin flóknu breytinga ár:

Unglingsár og miðaldur

Erna Björk Ásbjörnsdóttir

Leiðbeinandi: Eyrún María Rúnarsdóttir

  • Twitter Clean
  • Facebook Clean

© 2014 Ráðstefna

bottom of page