top of page

Ég heiti Helga Rós, er 32 ára móðir tveggja barna, unnusta og nemi. Ég ólst upp í Kópavogi og gekk í sama skólann öll mín 10 grunnskólaár. Að því loknu lá leiðin í Menntaskólann í Kópavogi og útskrifaðist þaðan í desember 2002. Ég hóf nám í Iðnskólanum í Hafnarfirði árið 2004 og lærði Húsgagnasmíði en hef ekki lokið við það nám. Uppeldis og menntunarfræði varð fyrir valinu sem grunnnám í HÍ af því að mér sýndist það áhugavert og fjölbreytt, sem reyndist rétt. Það tengist líka einu af áhugamálum mínum skátahreyfingunni, en hún er í eðli sínu uppeldishreyfing.

 

Rannsóknin mín fjallar um upplifun manna í afplánun á æskuárum sínum. Markmiðið er að beina sérstaklega sjónum að grunnskólaárum þátttakenda og samskiptum við fjölskyldur þeirra, kennara og samnemendur. Í þeim tilgangi að athuga hvort hægt sé að benda á birtingarmynd stimplunar í æsku þeirra og hvort það hafi mótað hegðun þeirra í gegnum lífið. Stimplunarkenningin segir að einstaklingar líta á raunveruleikann frá sjónarhorni skilaboða sem þeir hafa fengið eða aðstæðum sem þeir hafa lent í. Þeir móta svo hegðun sína í framhaldi af því (Siegel, 2012). Upplýsingum var aflað með eigindlegri aðferðafræði og tekin viðtöl við fimm einstaklinga á aldrinum 21 – 35 ára. Rannsóknin fór fram inni á Litla-Hrauni og stuðst var við markvisst hentugleikaúrtak.

Helstu niðurstöður lúta að samskiptum við foreldra, stimplanir úr skólaumhverfinu og upplifun viðmælenda á stimplun og mótun á unglingsárum þeirra. Það sem er athyglisverðast í upplifunum þátttakenda var hvernig þeir upplifðu stimplanir fullorðinna, foreldra og kennara og skólastjóra. Til að mynda segir einn viðmælenda minna frá því hvernig kennari stimplar hann latan. Hann segir: „ [...]að eins og þú veist allir kennarar hafa sagt við mömmu og pabba skiluru hann Sigurjón getur alveg lært hvað sem er skiluru hann nennir því bara ekki það var bara þannig sko [...]“.

Helga Rós Einarsdóttir

Leiðbeinandi: Inga Guðrún Kristjánsdóttir

Æskuminningar einstaklinga í afplánun

Birtingarmynd stimplunar?

 

  • Twitter Clean
  • Facebook Clean

© 2014 Ráðstefna

bottom of page