


Ég heiti Kristinn Arnar Benjamínsson og er 23 ára gamall. Ég aldist upp á Hvammstanga og kláraði mína grunnskólagöngu þar. Eftir það fór ég á Sauðárkrók og útskrifaðist úr Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra vorið 2011. Í byrjun ársins 2012 fór ég í uppeldis- og menntunarfræði og sé það að þetta nám fellur mjög vel við mitt áhugasvið. Ég hef mörg ár að baki í klassísku gítar- og tónlistarnámi þannig að áhugi minn er mikið á tónlistarsviðinu. Hlutverk tónlistar í daglegu lífi fólks er margþætt. Hún er allsstaðar í kringum okkur og getur haft gífurleg áhrif á bæði líðan og tilfinningar okkar. Áhrif tónlistar eru þó mun meiri og fjölbreyttari heldur en einungis til að vera okkur til skemmtunar. Þessi áhrif eru eitthvað sem mig langar til að rýna í nánar og útfrá þeim finna út hlutverk tónlistar og mikilvægi hennar sé fyrir börn.
Talið er að við fæðingu búi nýburi strax yfir þónokkru tónnæmi. Hefur hann þá nógu þroskaða heilastarfsemi til þess að bregðast við hinum og þessum skynáreitum. Börn fara fljótt að gera sér grein fyrir því að hægt sé að hafa áhrif á umhverfi sitt með því að gefa frá sér mismunandi hljóð. Þau læra að tónar geta geymt í sér ýmsar upplýsingar og fara því að gefa frá sér breytileg hljóð eða tóna eftir því hvernig þeim líður, hvort þau finna fyrir t.d. gleði eða hungri. Þegar börn eldast fer tónlistin að gegna öðruvísi, en samt mikilvægu, hlutverki í tilfinningalífi þeirra. Talið er að rík og fjölbreytt tónlist á leikskólaárum barna styrki tengsl þeirra við eigin tilfinningar. Tjáning tilfinninga verður auðveldari fyrir börnin sem leiðir að heilbrigðari einstakling með sterkari sjálfsmynd.

Hlutverk tónlistar og mikilvægi hennar fyrir börn
Kristinn Arnar Benjamínsson