top of page

Ég er fædd 12. apríl 1989 í Reykjavík og uppalin á Seltjarnarnesi. Eftir grunnskóla hóf ég nám við Menntaskólann við Sund. Þaðan útskrifaðist ég vorið 2009. Strax eftir menntaskóla flutti ég til Kaupmannahafnar þar sem ég var Au-pair. Áður en ég byrjaði í Uppeldisfræðinni byrjaði ég í hjúkrunarfræði en ég fann fljótt að ég var ekki á réttri hillu. Ári síðar, 2011, ákvað ég að fara í Uppeldis- og menntunarfræði þar sem það er innan míns áhugasviðs og þar fann ég mig strax. Planið er að leggja stund á áframhaldandi nám á sama sviði en um margt er að velja svo ég hef ekki enn ákveðið stefnuna.

 

Erindi mitt á ráðstefnunni er hluti úr BA-verkefni mínu sem unnið er í samvinnu við Drífu Sveinbjörnsdóttur. Verkefnið er samþætt af fræðilegum heimildum og eigindlegri rannsókn sem fjallar um upplifun og reynslu mæðra á atvinnumarkaði að því að brúa bilið milli loka fæðingarorlofs og að lögbundnum leikskólaaldri barna þeirra. Við tókum viðtöl við sex mæður, öll viðtöl voru svo afrituð og síðan voru þau greind og öll sameiginlegu þemu dregin fram. Við kynntumst aðeins bakgrunn þessara kvenna, reynslu þeirra af uppeldi og fengum að heyra hvaða breytingar þær myndu vilja sjá á núverandi dagvistunarkerfi. Helstu niðurstöður skiptast í þrjá kafla og eru eftirfarandi: Atvinnuþátttaka mæðra, Dagvistun og kerfið og Umönnun og uppeldi. Í kaflanum atvinnuþátttaka mæðra kemur sterkt í ljós að þeim finnst erfitt að samhæfa fjölskyldulíf og atvinnuna. Hvað varðar dagvistun þá var engin hjálp í boði eftir leit að úrræðum, þær þurftu að leita sjálfar og það tók langan tíma og nokkrar mæður töluðu um að hafa sótt um þegar börnin voru nýfædd til að tryggja það að þau fengju pláss. Við komumst að því að það vantar meiri samhæfingu af hálfu borgarinnar/kerfisins/sveitafélaga. Einnig þyrfti að bjóða upp á meira val og greinilegt er að hvað þessi mál varðar eru alltaf hindranir til staðar.

Atvinnuþátttaka að loknu fæðingarorlofi

Samhæfing ólíkra þátta

Karen Kjartansdóttir

Leiðbeinandi: Inga Guðrún Kristjánsdóttir

  • Twitter Clean
  • Facebook Clean

© 2014 Ráðstefna

bottom of page