


Ég fæddist þann 21.febrúar 1990. Ég ólst upp á Djúpavogi en bý nú ásamt kærasta mínum í Reykjanesbæ. Ég gekk í Menntaskólann á Egilsstöðum, þar höfðu kennarar mínir mikil áhrif á námið mitt. Ég leit mikið upp til kennarana sem kenndu mér uppeldisfræði og féll ég fyrir faginu þar. Ég hóf nám í Uppeldis- og menntunarfræði 2011.
Ég hef lengi haft áhuga á hvernig við þróum sjálfsmynd okkar og hvernig sjálfsmyndin hefur áhrif á allt það sem við gerum í daglegu lífi. Þá hef ég líka mikinn áhuga á líkamsrækt og hvernig líkamsrækt hefur áhrif á sjálfsmynd okkar.
Bandura er upphafsmaður að trú á eigin getu (self-efficacy), hann lýsir henni sem formi af sjálfstrú sem hefur áhrif á líðan okkar, hugsun okkar, hvatningu og hegðun. Trú á eigin getu er trú um að hafa þá getu til að framkvæma tiltekna hegðun sem ætlast er til af okkur. Þá hefur trú á eigin getu áhrif á val athafna, þrauseigu og hversu mikið við reynum á okkur. Rannsóknir hafa sýnt að einstaklingur sem hefur góða trú á eigin getu eru öruggari með vinnu sína, vinna hraðar, meta árángur sinn oftar og hafa meira sjálfstraust.
Einstaklingar með góða trú á eigin getu eru líklegri til að setja sér markmið og gera plan að þeim. Þeir eru metnaðarfullari og hafa raunsæari markmið. Nemendur með góða trú á eigin getu taka meiri ábyrgð á námi sínu. Rannsóknir hafa sýnt að trú á eigin getu hefur áhrif á hversu oft við hreyfum okkur. Þeir sem hafa góða trú á eigin getu eru líklegri til að ögra sér í líkamsrækt og eru öruggari í að framkvæma tiltekna hreyfingu. Trú á eigin getu í líkamsrækt eykst eftir því sem einstaklingnar eru virkari í að hreyfa sig.
Notast var við eiginlega rannsóknaraðferð og voru tekin viðtöl við fjórar stúlkur.

Ellen Rut Baldursdóttir
Leiðbeinandi: Sigurlína Davíðsdóttir