top of page

Ég er fædd í desember 1983 og er uppalin í Kópavogi. Ég er búsett á Reyðafirði ásamt kærasta og dóttur okkar. Ég hóf fjarnám við Háskóla Íslands haustið 2011 við Kennaradeild en færði mig fljótlega yfir á Uppeldis- og menntavísindasvið. Námsbrautin Uppeldis- og menntunarfræði varð fyrir valinu þar sem hún fellur að áhugasviði mínu auk þess heillaði fjölbreytileiki námskeiða. Ég byrjaði ung að æfa á hljóðfæri og er tónlist stór hluti af mínu lífi, auk ljósmyndunar.

 

Einelti er vanmetið vandamál og þjakar ófáa einstaklinga. Þolendur upplifa vanmátt og afleiðingar þess geta varað lengi. Afleiðingarnar finnast ekki einungis meðal þolenda, heldur líða gerendur einnig fyrir og geta leiðst á ranga braut í lífinu. Eineltisáætlanir skóla eru mismunandi en markmið þeirra er ætíð það sama, að uppræta einelti á skipulagðan og skilvirkan hátt. Flestar stefnur beina athygli sinni að gerendunum frekar en þolendunum, þó engar rannsóknir hafi sýnt fram á tilskilinn árangur. Eineltisstefnan „No Blame Approach” einblínir á að refsa ekki gerendum heldur er markmiðið að miðla afleiðingum eineltisins til gerendanna. Með því að skilja sársauka og þjáningu fórnarlambsins sem orsakast af eineltinu er hægt að vekja samkennd með þeim og þannig stöðva allt frekara einelti í hvaða birtingamynd sem er. Engin skóli hérlendis virðist vera fylgjandi „No Blame Approach” en áhugavert væri að vita hvort stefnan henti íslenskum aðstæðum og menningu. Íslenskt verkefni Sigrúnar Aðalbjarnardóttur „Hlúð að félags- og tilfinningaþroska nemenda” hefur svipaða nálgun og „No Blame Approach” þó fræðilegi ramminn sé ekki sá sami. Í verkefni Sigrúnar var leitast við að virkja nemendur til þess að taka rétta ákvörðun með jákvæðri styrkingu, nemendur öðluðust þar með ábyrgð og að tileinka sér þá æskilega hegðun til frambúðar.

Hrafnhildur Ólafsdóttir

Hverjar eru fræðilegar forsendur eineltisáætlana sem refsa ekki gerendum eins og „No Blame Approach” og hvernig er unnið á grunni þeirra?

  • Twitter Clean
  • Facebook Clean

© 2014 Ráðstefna

bottom of page