


Ég er fædd í janúar 1986 og bjó alla mína æsku á Höfn í Hornafirði. Þegar kom að menntaskóla varð Menntaskólinn að Laugarvatni fyrir valinu. Eftir menntaskóla tók ég pásu frá skóla og vann og ferðaðist. Ég prufaði síðan Þjóðfræði í HÍ veturinn 2007 - 2008. Eftir þann vetur ferðaðist ég meira og vann þess á milli á leikskóla þar sem áhugi minn á náminu kviknaði. Haustið 2011 byrjaði ég svo í uppeldis- og menntunarfræði og klára núna 120 einingar en tek Þjóðfræði með sem aukagrein.
Erindi mitt á ráðstefnunni er unnið úr BA – verkefninu mínu sem snýr að ADHD og þeim aðilum sem tengjast börnum sem greinst hafa með ADHD hvað mest. Verkefnið mitt er rannsóknarritgerð sem byggð er upp á fræðilegum heimildum.Athyglisbrestur og ofvirkni eru þættir sem hafa að öllum líkindum verið í mannfólki frá upphafi tíma. Þegar litið er til baka um nokkur ár og áratugi má sjá að þeim börnum sem fá greiningu á ADHD hefur fjölgað mikið. Það getur verið ákveðin áskorun fyrir mörg börn og unglinga með ADHD að mæta þeim reglum og kröfum sem þau standa frammi fyrir í daglegu lífi til dæmis í skólastofunni.Þegar barn greinist með ADHD er komið stórt verkefni sem foreldrarnir þurfa á kljást við. Það er hina ýmsu hjálp að fá fyrir foreldra. Það getur hins vegar verið svolítið erfitt ef foreldar vita ekki hvar þeir eiga að leita. ADHD samtökin á Íslandi hafa undanfarin ár verið fjölskyldum barna sem greinst hafa með ADHD innan handar og er gífurlega mikla fræðslu og hjálp að fá þar.

ADHD í daglegu lífi
Hvaða aðferðir geta kennarar og foreldrar notað til að aðstoða börn með ADHD í þeirra daglega lífi
Selma Hrönn Hauksdóttir
Leiðbeinandi: Jónína Sæmundsdóttir