


Ég heiti Berglind Dögg Einisdóttir og er 29 ára gömul. Ég bý í Keflavík þar sem ég er fædd og uppalin. Ég hef mjög gaman af því að ferðast og fara á snjóbretti þegar tími gefst. Ég útskrifaðist af náttúrufræðibraut frá Fjölbrautaskóla Suðurnesja vorið 2005. Haustið 2011 hóf ég nám í Uppeldis og menntunarfræði, eftir að hafa lokið þremur önnum í heilbrigðisverkfræði. Ástæðan fyrir því að ég valdi þessa námsleið var sú að námið heillaði mig mikið, það er mjög fjölbreytt og bíður upp á mikla möguleika.
Lokaritgerð mín fjallar um birtingarmyndir vanrækslu og tilkynningarskyldu í grunnskólum. Markmið ritgerðarinnar er að skoða hverjar birtingarmyndir vanrækslu eru og hvaða ferli fer í gang í grunnskólum þegar grunur leikur á vanrækslu barna. Ofbeldi skiptist niður í fjóra flokka og er vanræksla einn af þeim flokkum. Vanræksla er langstærsta og algengasta vandamálið þegar kemur að ofbeldi barna. Hins vegar virðist hún gleymast miða við líkamlegt og kynferðislegt ofbeldi. Vanræksla er ekki nýtt fyrirbæri en það var samt sem áður ekki fyrr en snemma á 20. öldinni sem Bandaríkjamenn fóru að líta á vanrækslu sem félagslegt vandamál. Afleiðingar vanrækslu geta haft skaðleg og slæm áhrif á þroska barna og því er mikilvægt að starfsmenn skóla og annarra stofnanna sem afskipti hafa af börnum séu meðvitaðir um hvað ber að gera þegar grunur leikur á vanrækslu barna.

Birtingarmyndir vanrækslu og tilkynningarskylda í grunnskólum
Berglind Dögg Einisdóttir
Leiðbeinandi: Berglind Rós Magnúsdóttir